Velkomin
í hjarta Suðurlands.
Hellirinn býður gistingu í fjórum fullbúnum
heilsárshúsum.
- Tvö fjögurra manna hús með svefnlofti.
- Eitt sex manna hús.
- Eitt sextán manna hús.
Í öllum húsunum er stofa, góð eldunaraðstaða,
baðherbergi með sturtu, sjónvarp og útvarp.
Þá er
einnig sólpallur, heitur pottur og kolagrill við öll
húsin. Hægt er að velja um uppbúin rúm
eða svefnpokapláss.
Ægissíða stendur við þjóðveg eitt, vestan
Ytri-Rangár, gengt Hellu. Fjarlægð frá Reykjavík
er 94 km.
Varla er hægt að finna fegurra útsýni en
frá Ægissíðu þar sem sést til nær
allra fjalla á Suðurlandsundirlendinu.
Nánari upplýsingar um bókanir og verð í síma
487 5871 / 868 3677, með faxi 487 5171 eða með því að senda
póst á netfangið hellirinn@simnet.is