Hellirinn


Forsíða
Sumarhúsin
Afþreying
Kort
Um okkur
Bókanir


Á Suðurlandi er áhugavert umhverfi og ýmis skemmtileg afþreying í boði

Hellar - Á Ægissíðu er að finna forna hella sem taldir eru vera höggnir af Pöpum fyrir landnám norrænna manna.

Veiðileyfi - Við túnfótinn rennur ein mesta laxveiðiá landsins, Ytri-Rangá.  Silungsveiði er einnig í ánni, sem og víða í nágrenninu.

Golf – 18 holu golfvöllur er á Strönd í 8 km fjarlægð.

Saga - Stutt er á Njáluslóðir, Njálusafnið á Hvolsvelli, Odda og Keldur á Rangárvöllum.

Söfn – Byggðasafnið að Skógum og Sögusetrið á Hvolsvelli.

Hestaferðir – Ýmsar hestaleigur eru í nágrenninu. Hestamannamót eru reglulega haldin á Gaddstaðaflötum við Hellu en þar er einn besti keppnisvöllur landsins.

Gönguferðir – Mjög stutt er að ganga að Ægissíðufossi og Árbæjarfossi. Falleg fjöll eru í næsta nágrenni, til dæmis er Hekla, drottning íslenskra fjalla, einungis í 40 km fjarlægð og Þríhyrningur í 30 km fjarlægð.

Dagsferðir - Tilvalið er að fara í dagsferðir að Gullfossi og Geysi, í Landmannalaugar, Þórsmörk, að Seljalandsfossi og Skógafossi eða skella sér til Vestmannaeyja með flugi frá Bakka.

Hella - Á Hellu, sem er í fimm mínútna göngufjarlægð, er alla almenna þjónustu að finna, t.d. verslun, veitingastaði, banka, bakarí og sundlaug.

 



Webdesigner
HELLIRINN * Ægissíðu/ Hella * Sími: 487-5171/ 868-3677 Fax: 487-5171 * netfang: hellirinn@simnet.is